- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sigurður með bandaríska landsliðinu er það vann farseðil til Þýskalands

- Auglýsing -

Bandaríkin unnu forkeppni Norður-Ameríku og Karíbahafs fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik sem lauk seint í gærkvöld í Bettendorf í Iowa. Bandaríska landsliðið vann grænlenska landsliðið í úrslitaleik, 32:18, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:10.

Bandaríkin eru þar með örugg um sæti á HM 2027 sem fram fer í Þýskalandi í janúar. Ekki er hægt að útiloka að Grænlendingar hreppi annað af tveimur boðssætum sem forseti Alþjóða handknattleikssambandsins hefur í hendi sér að deila út áður en dregið verður í riðla heimsmeistaramótsins 10. júní í München.


Sigurður Jefferson Guarino, nýr leikmaður Hauka, lék með bandaríska landsliðinu á mótinu. Því miður eru upplýsingar frá mótinu í skötulíki og þar af leiðandi um frammistöðu hans.

Aðeins fjögur landslið tóku þátt í þessum hluta forkeppninnar. Auk Bandaríkjanna og Grænlands sendu Mexíkó og Kanada landslið sín til leiks. Kúba dró landslið sitt úr keppni.

Hér upptaka af úrslitaleiknum:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -