- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Serbar áfram á kostnað Ungverja sem verða að sækja um boðskort

- Auglýsing -

Serbar komust í dag áfram á heimsmeistaramótið í handknattleik karla á næsta ári á kostnað Ungverja. Serbar unnu tveggja leikja rimmu liðanna í umspili HM samanlagt, 61: 60. Eins mars sigur Ungverja í Veszprém í dag nægði þeim ekki eftir tveggja marka tap í Serbíu í fyrri viðureigninni. Nú verða Ungverjar að reiða sig á að fá annað af tveimur „wild card“ (boðskort) sem forseti Alþjóða handknattleikssambandsins hefur úr að spila.

Ungverjar áttu síðustu sókn leiksins en sending samherja á milli sjö sekúndum fyrir leikslok hafnaði í höndum serbnesks varnarmanns.

Anton og Jónas í eldlínunni

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson fengu það vandasama hlutverk að dæma viðureignina í Veszprém í dag milli grannþjóðanna sem ekki eru þekktar fyrir að gefa þumlung eftir. Fórst þeim félögum vel úr hendi að halda uppi röð og reglu í leiknum.

Vanja Ilic skoraði níu mörk fyrir Serba. Bence Imre var atkvæðamestur Ungverja með sex mörk.

Anton Gylfi og Jónas eru síður en svo komnir í sumarleyfi

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -