Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF unnu fyrsta undanúrslitaleikinn við GOG í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, 38:35. Leikurinn var kaflaskiptur því GOG hafði fjögurra marka forskot að lokinni 30 mínútna viðureign, 19:15. Næst mætast liðin á heimavelli GOG á laugardaginn. Vinna þarf tvær viðureignir til að komast í úrslit.
Donni náði sér ekki á strik í leiknum. Hann skoraði ekki mark í fimm tilraunum en átti þrjár stoðsendingar. Emil Lærke var markahæstur með 10 mörk.
Efnilega örvhenta skyttan, Hjalte Lykke, var markahæstur hjá GOG með 10 mörk auk fjögurra stoðsendinga. Frederik Bjerre skoraði fimm mörk. Færeyingurinn Óli Mittún skoraði fjögur mörk og gaf fimm stoðsendingar.
Aalborg Håndbold og Mors-Thy eigast við í hinni viðureign undanúrslita. Leik þeirra er ekki lokið þegar þetta er ritað. Að loknum fyrri hálfleik er Aalborg 11 mörkum yfir, 22:11.



