- Auglýsing -
Ragnar Hermannsson hefur verið ráðinn styrktarþjálfari meistaraflokka handknattleiksdeildar Víkings.
Raggi var styrktarþjálfari hjá karlaliði Víkings í vetur sem skilaði sér svo í auknum árangri og betra þreki inni á vellinum, segir í tilkynningu Víkings í dag.
„Það er því mikið ánægjuefni að Raggi muni einnig sjá um styrktarþjálfun kvennaliðsins á komandi tímabili þar sem bæði lið Víkings í meistaraflokki munu spila í efstu deild. Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á frábæra og endurbætta lyftinga- og endurheimtaraðstöðu í Virkinu í Safamýri og eru styrktaræfingar þegar komnar á fullt hjá báðum liðum,“ segir í tilkynningu Víkings sem hægt er að finna í heild fyrir neðan auglýsinguna.
- Auglýsing -



