- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Eva Björk hefur skilað sér heim

- Auglýsing -

Handknattleikskonan Eva Björk Davíðsdóttir hefur skilað sér á ný heim í Gróttu eftir nokkurra ára veru með öðrum handknattleiksliðum hér heima og utanlands. Hún hefur síðustu sex ár verið kjölfesta Stjörnunnar og m.a. verið fyrirliði. Eva Björk er þrautreynd handknattleikskona og mikill liðsauki fyrir Gróttu sem leikur í Olísdeild á næstu leiktíð.

Eva Björk er uppalin á Seltjarnarnesi, fædd árið 1994 og varð Íslandsmeistari upp alla yngri flokka félagsins en einnig með meistaraflokki. Hún lék verulegt hlutverk með Gróttuliðinu sem vann af Íslands-, deildar- og bikarmeistaratitlana 2015 og Íslandsmeistaratitilinn 2016.

Fagna komu Evu Bjarkar

„Það er frábært þegar Gróttufólk kemur aftur á Nesið. Eva er frábær karakter sem mun hjálpa Gróttu í þeirri uppbyggingu sem liðið er í. Við fögnum komu Evu og hlökkum til að sjá hana á parketinu í Hertz-höllinni,“ sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttu þegar samningar voru í höfn.

Auk þess að leika með Gróttu var Eva Björk með Skuru IK í Svíþjóð, Ajax København í Danmörku og Sola HK í Noregi um árabil auk þess að eiga sæti í landsliðinu um árabil.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -