- Auglýsing -
Sænski meistaratitillinn blasir við Elínu Klöru Þorkelsdóttur og liðsfélögum í IK Sävehof eftir annan sigur á Skara HF, 30: 27, í úrslitum um meistaratitilinn. Leikið var í Skara. IK Sävehof getur tryggt sér meistaratitilinn á heimavelli í þriðju viðureigninni á heimavelli á sunnudaginn.
Elín Klara skoraði fjögur mörk í leiknum í Skara, gaf eina stoðsendingu og var einu sinni vikið af leikvelli.
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Skara-liðið. Hún gaf tvær stoðsendingar.
IK Sävehof hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og var með 10 marka forskot eftir 30 mínútna leik, 23:13. Gafst þar með möguleiki á að dreifa álaginu á milli leikmanna liðsins þegar kom fram í síðari hálfleik.
- Auglýsing -


