- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Góður heimasigur hjá Elmari

- Auglýsing -

Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen lyftu sér upp í fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins í kvöld eftir tveggja marka sigur á TV 05/07 Hüttenberg á heimavelli, 35:33. Hüttenberg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 20:18.

Elmar skoraði tvö mörk auk einnar stoðsendingar.


Sem fyrr segir þá situr Nordhorn í fimmta sæti deildarinnar með 42 stig eftir 32 leiki. Liðið er stigi á eftir Potsdam og stigi á undan Eintracht Hagen.

Bietigheim er í efsta sæti og er þegar öruggt með sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Balingen stendur vel að vígi í öðru sæti.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -