- Auglýsing -
Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, sem gekk til liðs við Selfoss í upphafi nýliðinnar leiktíðar, hefur ákveðið að framlengja vist sína í bænum. Þar af leiðandi hefur hefur hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Selfoss.
Emelía Ósk er átján ára gömul og hafði leikið með Fjölni alla sína ævi þar til hún söðlaði um og skipti yfir á Selfoss síðasta haust. Hún lék stórt hlutverk bæði í vörn og sókn Selfossliðsins í vetur.
Emelía Ósk hefur undanfarin ár verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og er í keppnishópi 20 ára landsliðsins sem tekur þátt í HM í Kína í sumar.
- Auglýsing -



