Einar Rafn Eiðsson hefur skrifað undir eins árs samning við handknattleiksdeild FH. Einar Rafn, sem hefur leikið með KA undanfarin fimm ár, hefur alls leikið 262 leiki fyrir Fimleikafélagið. Hann gekk til liðs við FH sumarið 2012 og lék með liðinu til ársins 2021 ef frá er talið eitt ár, 2014/2015, er hann var í herbúðum Nøtterøy í Noregi.
Einar Rafn átti frábær ár í FH-treyjunni og var m.a. kjörinn íþróttamaður FH árið 2018 og hefur bæði orðið deildarmeistari og bikarmeistari með liði félagsins. Þess má geta að Einar Rafn hefur skorað 1.752 mörk í deildarkeppni á Íslandi.
„Við fögnum því að fá Einar Rafn heim í Krikann. Hér átti hann frábær ár og markaði spor sín í FH-söguna. Einar kemur bæði með mikla reynslu og mikil gæði inn í FH-hópinn,“ segir Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH, í tilkynningu.
Auk KA, Nøtterøy og FH hefur Einar Rafn leikið með Fram og Haukum.



