- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Donni leikur til úrslita í Danmörku

- Auglýsing -

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar hans í Skanderborg AGF eru komnir í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn í handknattleik karla. Þeir unnu GOG, 33:26, í annarri viðureign liðanna í dag. Leikið var í Arena Svendborg, heimavelli GOG á Fjóni.

Donni skoraði fjögur mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Emil Lærke skoraði átta mörk og var eins og stundum áður markahæstur hjá Skanderborg. Simon Sejr átti stórleik í markinu, varði 17 skot, 50%.


Frederik Pedersen var atkvæðamestur GOG-liða með sex mörk. Óli Mittún skoraði fjögur mörk og gaf fimm stoðsendingar.

Meistarar síðustu ára, Aalborg Håndbold, unnu Mors-Thy, 37: 35, í annarri viðureign liðanna í hinni rimmu undanúrslita. Aalborg Håndbold verður þar með andstæðingur Skanderborg AGF í úrslitarimmunni um meistaratitilinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -