Benedikt Gunnar Óskarsson fór hamförum í sigri Kolstad á Drammen í fyrstu viðureign liðanna um sigurlaunin í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag, 34:30. Leikið var í Þrándheimi. Benedikt Gunnar skoraði níu mörk, ekkert þeirra úr vítaköstum. Hann lét ekki þar við standa heldur gaf sjö stoðsendingar.
Næst leiða liðin saman kappa sína í Drammen á miðvikudaginn. Tvö vinninga þar til þess að standa uppi sem sigurvegari í úrslitakeppninni sem veitir aðgang að umsókn um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson varði 12 skot í markinu, 34%, ef eitthvað er markatölfræði norska handknattleikssambandsins.
Ísak Steinsson markvörður Drammen varði eitt skot í markinu þann skamma tíma sem hann fékk að spreyta sig.



