- Auglýsing -
Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen töpuðu í dag á heimavelli fyrsta úrslitaleiknum við HC Kriens-Luzern um meistaratitilinn í handknattleik karla í Sviss, 37: 33. Óðinn Þór var markahæstur hjá Kadetten með níu mörk, eitt þeirra úr vítakasti. Næsta viðureign liðanna fer fram á miðvikudagskvöld. Þrjá sigra þarf til þess að hreppa meistaratitilinn.
HC Kriens-Luzern hafði þriggja fjögurra marka forskot í hálfleik, 17:13 í Schaffhausen BBC Arena þar sem 2.233 áhorfendur greiddu aðgangseyri. Muninn lánaðist leikmönnum Kadetten ekki að vinna upp í síðari hálfleik. Þeir verða að bíta í skjaldarrendur í Luzern á miðvikudag.
- Auglýsing -



