Ný deildarkeppni í handknattleik kvenna og karla lítur dagsins ljós á næstu misserum í Suðaustur-Evrópu. Að loknum fundi í Podgorica á laugardaginn tilkynntu handknattleikssambönd Svartfjallalands, Serbíu og Norður-Makedóníu um stofnum keppninnar sem hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið.
Serbar, Svartfellingar og Norður-Makedóníumenn senda í upphafi lið til leiks í karlaflokki. Í kvennaflokki verða Króatar og Slóvenar einnig með lið auk Serba, Svartfellinga og Norður-Makedóníumanna.
Í karlakeppninni er stefnt að því að Serbía og Norður-Makedónía verði með fjögur þátttökulið hvor, en Svartfjallaland mun tefla fram tveimur liðum. Fyrirkomulagið verður tiltölulega þétt með áherslu á mikla spennu og harða samkeppni allt tímabilið.
Markmiðið er að skapa jafnari og meira aðlaðandi keppni með fleiri toppviðureignum þvert á svæðið. Þannig á ekki síst að efla kvennahandknattleik sem sums staðar hefur átt undir högg að sækja.
Þjóðirnar vonast til þess að þessi nýja keppni skjóti fleiri stoðum undir handknattleik í löndunum og efli samstarf s.s. á sviði þjálfunar og faglegrar umgjörðar. Jafnframt ala menn þá von í brjósti að sameiginlegur svæðisbundinn vettvangur geti aukið viðskiptalegan áhuga og fjölmiðlaathygli á íþróttinni.
Næsta skref verður stofnun sameiginlegrar stjórnunarskrifstofu sem mun sjá um skipulagningu, mótakerfi og langtímaáætlanagerð fyrir deildirnar með það að markmiði að flautað verði til leiks í fyrstu viðureignum eins fljótt og auðið verður.



