- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Verður Aron ráðinn aðalþjálfari FH á morgun?

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild FH hefur boðað til blaðamannafundar á morgun, fimmtudag. Efni er m.a. þjálfaramál meistaraflokks karla. Væntanlega verður tilkynnt um ráðningu Arons Pálmarssonar í starf aðalþjálfara FH-liðsins. Fregnir um að Aron taki við af Sigursteini Arndal hafa verið uppi síðan á mánudaginn að Handkastið sagði frá.


Hermt er að Aron og Sigursteinn hafi hlutverkaskipti samkvæmt heimildum Handkastsins. Sigursteinn verði þar með aðstoðarþjálfari við hlið Arons.

Aron kom opinberlega inn í þjálfarateymi FH í upphafi þessa árs.

Sigursteinn hefur verið aðalþjálfari karlaliðs FH frá 2019. Hann skrifaði undir nýjan þriggja ára samning í byrjun september á síðasta ári.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -