- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fjórða sætið var niðurstaðan og Evrópa á næstu leiktíð

- Auglýsing -

Úlfar Páll Monsi Þórðarson var ekki á meðal þeirra sem skoruðu fyrir RK Alkaloid þegar liðið tapaði fyrir Eurofarm Pelister í síðustu umferð úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar í Norður-Makedóníu í gær, 31:26.

RK Alkaloid hafnaði í fjórða sæti úrslitakeppni sex efstu liða deildarinnar og tryggði sér þátttökurétt í Evrópubikarkeppninni á næstu leiktíð.

Unnu keppnina fyrir tveimur árum

RK Alkaloid vann Evrópubikarkeppnina fyrir tveimur árum, ári á eftir Val, eftir skrautlega atburðarás er liðið mætti AEK Aþenu. Leikmenn gríska liðsins neituðu að hefja síðari úrslitaleikinn sem fram átti að fara í Skopje þrátt fyrir að þeir hafi mætt á staðinn. Forráðamenn AEK töldu að hömlur hefðu verið settar á komu grískra stuðningsmanna til Norður-Makedóníu og neituðu að hefja leik. Málið fór til EHF sem úrskurðaði RK Alkaloid sigur í úrslitarimmunni. Bæði lið voru sektuð og AEK var dæmt í tveggja ára keppnisbann frá Evrópumótum. M.a. var hrækt á leikmenn RK Alkaloid í fyrri úrslitaleiknum í Aþenu auk þess að margir áhorfendur reyktu á áhorfendabekkjunum.

Allt var þetta mál í kringum úrslitaleikina tvo með nokkrum ólíkindum, einkum það sem sneri að AEK, sem einnig hafði lent í hremmingum í viðureignum sínum við Partizan Belgrad fyrr í keppninni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -