Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar við annan mann, innsiglaði áframhaldandi veru í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld með öruggum sigri á lánlausu liði HC Erlangen, 32:26, í Nürnberg.
Bergischer HC endurheimti sæti sitt í 1. deild fyrir ári síðan eftir eins árs veru í 2. deild. Liðið átti lengi vel erfitt uppdráttar í 1. deild í vetur en hefur jafnt og þétt sótt í sig veðrið er á leiktíðina hefur liðið. Fyrir utan að halda sæti í þýsku 1. deildinni komst Bergischer HC í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn.
Ekki verður sagt að HC Erlangen hafi sótt í sig veðrið þegar á leið keppnistímabilið. Þvert á móti hefur jafnt og þétt fjarað undan liðinu, ekki síst eftir að Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson meiddust. Þeir hafa ekki leikið með liðinu vikum saman. Síðan hefur liðið ekki krækt í stig en nær sennilega að hanga uppi á þeim stigum sem unnust er þeir félagar voru í essinu sínu.
Naumt tap hjá Elmari í Essen
Elmar Erlingsson skoraði fjögur mörk og gaf tvær sendingar í naumu tapi Nordhorn-Lingen fyrir Tusem Essen í hörkuleik í Essen í gærkvöld, 35:34. Elmari var einnig vikið einu sinni af leikvelli.
Nordhorn-Lingen situr í fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins, stigi ofar en Hagen sem á leik til góða. Nordhorn á einn leik eftir óleikinn.


