- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bruno framlengir samning sinn hjá KA

- Auglýsing -

Markvörðurinn Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Bruno, sem er 24 ára, kom af krafti ungur inn í markið hjá meistaraflokksliði KA veturinn 2020-2021. Hann hefur síðan leikið 143 leiki fyrir KA í deild, bikar og í Evrópukeppni.


„Við erum afar spennt fyrir því að halda Bruno áfram innan okkar raða en auk þess að vera frábær í markinu er Bruno þekktur fyrir frábærar sendingar upp völlinn sem hafa gefið fjölmörg mikilvæg hraðaupphlaupsmörk undanfarin ár. Þá er hann einnig mikill félagsmaður og vinnur ötullega í starfinu í kringum KA sem er ómetanlegt,“ segir m.a. í tilkynningu KA.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -