Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar í Kadetten Schaffhausen brotlentu gegn HC Kriens-Luzern í úrslitaviðureignum um meistaratitilinn í Sviss. Kadetten, sem verið hefur meistari fjögur síðustu ár og vann deildina með fáheyrðum yfirburðum í vetur, tapaði þrisvar sinnum fyrir HC Kriens-Luzern án þess að vinna leik. HC Kriens-Luzern vann öruggan sigur í þriðja leiknum í Schaffhausen í dag, 39:33, eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik, 21:20.
Óðinn Þór skoraði sex mörk í leiknum í dag, fjögur þeirra úr vítaköstum. Luka Maros var markahæstur með 14 mörk.
Marin Sipic skoraði 11 mörk fyrir HC Kriens-Luzern sem aldrei áður hefur unnið svissneska meistaratitilinn. Liðið hefur tvisvar orðið bikarmeistari.
Réttindalaus þjálfari meistaranna
Það sem gerir sigur HC Kriens-Luzern enn áhugaverðari er að Thomas Zimmermann, þjálfari liðsins undanfarin ár, verður að láta af störfum vegna þess að hann hefur ekki lengur réttindi til þess að vera aðalþjálfari liðs í efstu deild í Sviss. Andy Schmid, þjálfari landsliðs Sviss, tekur við þjálfun HC Kriens-Luzern. Hann er einnig forveri Zimmermann sem nú verður að setjast á skólabekk til að öðlast full þjálfararéttindi.



