- Auglýsing -
Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samninginn sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Hann er einn af rótgrónum Gróttumönnum og hefur verið fyrirliði undanfarin ár. Hannes á 216 leiki að baki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319 mörk.
„Það eru frábær tíðindi að Hannes verði áfram í herbúðum félagsins enda lykilleikmaður liðsins bæði sóknarlega og varnarlega. Það er hugur í okkur Gróttumönnum og er Hannes mikilvægt púsl á þeirri leið,“ sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins í tilkynningu.
- Auglýsing -


