- Auglýsing -
Tryggvi Garðar Jónsson, fyrrverandi leikmaður Vals og Fram, hefur samið við Viking Bergen en liðið leikur í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Tryggvi Garðar hefur síðasta árið leikið með Alpla Hard í Austurríki en losnaði undan samningi við lok leiktíðar.
Tryggvi Garðar er 23 ára gamall og mun honum verða ætlað hlutverk jafnt í vörn sem sókn Víkings-liðsins. Félagið hefur eftir Tryggva Garðari að hann líti til næsta keppnistímabils með eftirvæntingu.
Viking Bergen hafnaði í öðru sæti næstefstu deildar norska handknattleiksins í vor en öðlaðist sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð eftir vaska framgöngu í umspiliskeppni.
- Auglýsing -



