- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handbolti.is – sögulok

- Auglýsing -

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var tekin með trega enda er kastað glæ vinnu síðustu sex ára.

Tap hefur verið á útgáfunni frá upphafi en jafnt og þétt hefur hallað undan fæti í auglýsingasölu frá ársbyrjun 2025. Áhugi auglýsenda hefur minnkað í öfugu hlutfalli við fjölgun lesenda. Síðustu vikur og mánuði hefur orðið æ skýrara að lítið vit er í að halda áfram. Ekki hafa undanfarnir mánuðir, né takmarkað útsýni til framtíðar, orðið til að hvetja okkur til frekari dáða. Þess vegna hefur viljandi jafnt og þétt dregið úr fréttaöflun undanfarnar vikur.

Handbolti.is hóf göngu sína undir stjórn okkar 3. september 2020. Að baki er lærdómsríkur tími. Sumt gekk vel, annað þróaðist á annan veg en vonir okkar stóðu til.

Að leiðarlokum þökkum við þeim sem stutt hafa við bakið á útgáfunni með margvíslegu móti. Sérstakar kærleikskveðjur og þakkir fá heiðurshjónin Jóhann Guðjónsson og Guðrún Ingvarsdóttir hjá Namo sem flytja m.a. inn Jako-íþróttafatnað. Þau hafa auglýst frá fyrsta mánuði til þess síðasta.

Lesendum þökkum við innilega fyrir samfylgdina.

Með vinsemd,
Ívar Benediktsson,
Kristín B. Reynisdóttir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -