- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fyrstu íslensku systkinin sem verða Evrópumeistarar

- Auglýsing -

Systkinin Arnar Freyr Arnarsson og Ásrún Inga Arnarsdóttir eru vafalaust einu íslensku systkinin sem hafa unnið Evrópumeistaratitil í handknattleik með sitt hvoru liðinu og það aðeins með árs millibili. Arnar Freyr vann Evrópudeildina með MT Melsungen í dag. Ásrún Inga varð fyrri til því hún var í Valsliðinu sem vann Evrópubikarkeppnina fyrir ári.

Það er svo sannarlega ekki á hverjum degi sem Íslendingar vinna Evrópumeistaratitil í handknattleik, hvað þá öðrum íþróttagreinum. Því er um sögulegan árangur að ræða hjá systkinunum, Arnari Frey og Ásrúnu Ingu, í handknattleikssögu Íslands. Vafalaust eru fá dæmi um önnur evrópsk systkini sem hafa náð þessum stóra áfanga.

Systur saman meistarar

Systurnar Ásdís Þóra og Lilja Ágústsdætur voru saman í sigurliði Vals í Evrópubikarkeppninni á síðasta ári undir stjórn föður síns, Ágústs Þórs Jóhannssonar þjálfara.

Arnar Freyr hefur átt sæti í A-landsliði Íslands í um áratug. Ásrún Inga hefur hins vegar gert það gott með yngri landsliðum Íslands, síðast 19 ára landsliðinu á EM síðasta sumar. Hún var því miður lítið með Val á nýliðinni leiktíð vegna krossbandaslits í haust.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -