- Auglýsing -
Vegna gildandi fjöldatakmarkana má aðeins selja 55 áhorfendum aðgang að leik Kríu og Harðar í Grill 66-deild karla í handknattleik sem fram fer í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi og hefst klukkan 20.30. Til að koma til móts við fjölda stuðningsmanna Kríu liðsins og Harðar hér á höfuðborgarsvæðinu verður leikurinn sendur út beint á Rauða ljóninu, sem þeir Kríumenn segja vera sinn heimavöll, í gegnum streymi úr íþrótthúsinu.
Streymið frá leiknum verður einnig aðgengilegt á handbolti.is. Hlekkur á leikinn er hér fyrir neðan en einnig verður hann settur í sérstaka frétt þegar nær dregur þeim tíma að flautað verður til leiks.
- Auglýsing -