Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, hefur gert eina breytingu á íslenska landsliðshópnum sem heldur til Tékklands í fyrramálið.
Þórey Rósa Stefánsdóttir leikmaður Fram kemur inn fyrir Tinnu Sól Björgvinsdóttur leikmann HK sem er frá vegna meiðsla.
A og B landslið kvenna halda í fyrramálið til Cheb í Tékklandi þar sem liðin munu taka þátt í tveimur aðgreindum fjögurra liða mótum. Á mótinu verður leikið gegn landsliðum frá Noregi, Sviss og Tékklandi dagana 25. – 27. nóvember.
- Auglýsing -