- Auglýsing -
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var besti leikmaður Olísdeildar kvenna í handknattleik í nóvember samkvæmt niðurstöðum tölfræðiveitunnar HBStatz sem birti samantekt sína í dag.

Jóhanna Margrét skoraði að jafnaði 7,7 mörk að jafnaði í leik með HK í nóvember og var með 62% skotnýtingu. Einnig var hún með þrjár stoðsendingar, 3,3 fiskuð vítaköst og 1,3 stolna bolta að meðaltali í leikjum HK í nýliðnum mánuði.

HBStatz greindi einnig frá því að Marta Wawrzykowska, ÍBV, hafi verið markvörður mánaðarins og Elna Ólöf Guðjónsdóttir, HK, var sá sem skaraði fram úr öðrum varnarmönnum Olísdeildar í nóvember.

Martha Hermanannsdóttir, KA/Þór var besti sóknarmaður mánaðarins.

- Auglýsing -