- Auglýsing -
Áfrýjunardómstóll Handknattleikssambands Íslands staðfesti í gær dóm dómstóls HSÍ frá 7. desember um að viðureign ungmennaliðs Stjörnunnar og Selfoss í Grill66-deild kvenna fari fram á nýjan leik.
Dómsorð áfrýjunardómstólsins í gær var stutt og laggott: „Hinn áfrýjaði dómur skal vera óraskaður.“
Í áfrýjunardómstólnum sátu Benedikt Bogason, Gunnar Jónsson og Jóhannes Albert Sævarsson.
Snarpa niðurstöðu áfrýjunardómstól HSÍ í gær má lesa hér.
- Auglýsing -