Norska kvennalandsliðið í handknattleik, sem varð heimsmeistari í fjórða sinn í kvöld, hefur verið eitt það sigursælasta, ef ekki það sigursælasta, af kvennalandsliðum heimsins um langt árabil. Allt frá því að Noregur vann til fyrstu verðlauna á stórmóti 1986 hefur árangur þess verið ævintýralegur enda er það af mörgum talið vera vinsælasta íþróttalið landsins.
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur verið í þjálfarateymi landsliðsins frá 2001. Fyrst var hann við leikgreiningar en var ráðinn aðstoðarþjálfari 2003 og tók við sem aðalþjálfari eftir heimsmeistaramótið í Kína 2009. Þórir hefur unnið til 13 verðlauna á stórmótum frá 2009.
Hér fyrir neðan er tíundaður árangur norska landsliðsins á stórmótum frá 1986 en það hefur verið á öllum stórmótum síðan að einu undanskildu, Ólympíuleikunum í Aþenu 2004.
HM 1986: Brons.
ÓL 1988: Silfur.
HM 1990: 6. sæti.
ÓL 1992: Silfur.
HM 1993: Brons.
EM 1994: Brons.
HM 1995: 4. sæti.
ÓL 1996: 4. sæti.
EM 1996: Silfur.
HM 1997: Silfur.
EM 1998: Gull.
HM 1999: Gull.
ÓL 2000: Brons.
EM 2000: 6. sæti.
HM 2001: Silfur.
EM 2002: Silfur.
VM 2003: 6. sæti.
ÓL 2004: vann sér ekki þátttökurétt.
EM 2004: Gull.
HM 2005: 9. sæti.
EM 2006: Gull.
HM 2007: Silfur.
ÓL 2008: Gull.
EM 2008: Gull.
HM 2009: Brons.
EM 2010: Gull.
HM 2011: Gull.
ÓL 2012: Gull.
EM 2012: Silfur.
HM 2013: 5. sæti.
EM 2014: Gull.
HM 2015: Gull.
ÓL 2016: Brons.
EM 2016: Gull.
HM 2017: Silfur.
EM 2018: 5. sæti.
HM 2019: 4. sæti.
EM 2020: Gull.
ÓL 2021: Brons.
HM 2021: Gull.