- Auglýsing -
Íslenska landsliðið í handknattleik karla, strákarnir okkar, æfðu í fyrsta sinn í dag í keppnishöllinni glæsilegu í Búdapest, MVM Dome. Í henni leikur liðið sinn fyrsta leik á EM annað kvöld gegn Portúgal. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var viðstaddur upphaf æfingarinnar í dag. Hér fyrir neðan getur að líta hluta afrakstursins.
- Auglýsing -