- Auglýsing -
Íslenska landsliðið hóf keppni á EM í handknattleik karla í Búdapest í kvöld af miklum krafti með góðum sigri á landsliði Portúgals, 28:24, MVM Dome í Búdapest.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var með vakandi auga á leiknum frá upphafi til enda í hörkugóðri stemningu í keppnishöllinni þar sem nokkur hundruð Íslendingar voru á meðal áhorfenda.
Nokkrar af fjölda mynda frá leiknum er að finna hér að neðan. Lýsa þær stemningunni, utan vallar sem innan.
- Auglýsing -