- Auglýsing -
Íslensku landsliðsmennirnir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, og Sigvaldi Björn Guðjónsson, er á meðal þeirra sem áttu bestu tilþrifin í kappleikjum gærdagsins á Evrópumótinu í handknattleik.
Björgvin Páll er í hópi þeirra sem þótti sýna hvað lipurlegasta takta í markinu þegar hann varði frá hollenskum landsliðsmanni.
Sirkusmark Sigvalda Björns Guðjónssonar í síðari hálfleik í viðureigninni við Holland yljar mörgum enda einstaklega vel gert.
Myndskeiðin með fimm bestu markvörslunum og fimm glæsilegustu mörkum gærdagsins er að finn hér fyrir neðan.
- Auglýsing -