- Auglýsing -
ÍR-ingurinn Bjarki Steinn Þórsson og Þráinn Orri Jónsson úr Haukum sluppu við leikbann eftir að aganefnd HSÍ hafði farið yfir mál þeirra á vikulegum fundi sínum. Báðir fengu þeir rautt spjald í fjórðu umferð Olísdeildar karla í handknattleik fyrir og um síðustu helgi.
Báðir hlutu þeir útilokun með skýrslu en brot þeirra voru ekki metin svo alvarleg að ástæða væri til að úrskurða þá í leikbann. Þeir voru hinsvegar minntir á „stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota.“
Þráinn Orri hefur fengið rautt spjald með útilokun í tveimur síðustu leikjum Hauka, gegn Val og Stjörnunni.
- Auglýsing -