Fyrsti starfsmaður íslenska landsliðsins í handknattleik hefur greinst smitaður af covid19 eftir því sem Handknattleikssamband Íslands var að greina frá. Jón Birgir Guðmundsson, annar sjúkraþjálfari landsliðsins, greindist jákvæður í skyndiprófi sem íslenski hópurinn gekkst undir í hádeginu. Beðið er niðurstöðu úr PCR-prófi.
Þar með hafa sjö úr íslenska hópnum greinst með covid smit, sex leikmenn og einn starfsmaður.
Fréttatilkynning HSÍ:
„Í hraðprófi sem tekið var í hádeginu í dag greindist Jón Birgir Guðmundsson, sjúkraþjálfari liðsins með jákvætt próf og er beðið eftir niðurstöðu PCR prófs.
PCR próf liðsins í gærkvöldi voru öll neikvæð er frá eru taldir þeir 6 sem voru í einangrun.
Sex leikmenn og einn starfsmaður liðsins hafa þá greinst síðustu daga og eru í einangrun.“
Jón Birgir er faðir Elvars Arnar Jónssonar landsliðsmanns sem greindist smitaður á miðvikudaginn og hefur síðan verið í einangrun.