Íslenska landsliðið vann öruggan sigur á Frökkum í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik karla í kvöld, 29:21, í MVM Dome í Búdapest. Leikmenn létu áföll undanfarinna daga ekki slá sig út af laginu, þvert á móti virtust þeir hafa eflst við mótlætið.
Með sigrinum opnast möguleiki á sæti í undanúrslitum en til þess þarf að halda vel á spilunum í tveimur síðustu leikjunum í milliriðli, gegn Króötum á mánudaginn og Svartfellingum á miðvikudag.
Að vanda var Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari í MVM Dome í kvöld og fangaði stemninguna utan vallar sem innan. Hér fyrir neðan er leikurinn í myndum.
Um leið er minnt á fyrri syrpur Hafliða frá EM2022: Ferðasagan, æfing í keppnishöllinni, upphitun stuðningsmanna, Ísland – Portúgal 28:24, Stórkostlegir, Ísland – Holland 29:28, Stuðningurinn, Létt á æfingu. Ísland – Ungverjaland 31:30, Stemningin í stúkunni, Ísland – Danmörk, 24:28. Fjölmennir og hressir.