- Auglýsing -
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Fengum orku í gegnum fólkið í stúkunni

- Auglýsing -

„Við fengum hrikalega orku í gegnum fólkið í stúkunni,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, einn leikmanna landsliðsins í handknattleik karla, í samtali við handbolta.is eftir sigur á Frökkum á EM í handknattleik. „Undir lokin voru allir farnir að hvetja okkur, meira að segja Frakkarnir líka,“ sagði Elliði Snær ennfremur.


Íslensku áhorfendurnir fóru á kostum á áhorfendapöllunum í leiknum. Þeir voru færri en á fyrri leikjum Íslands á mótinu en létu engu að síður mikið fyrir sér fara. Góður liðsauki barst síðan frá dönskum áhorfendum og þegar á leið mátti sjá Ungverja og Króata komna í hópinn auk nokkurra Frakka áður en leikurinn var úti.


Hafliði Breiðfjörð beindi myndavélum sínum og linsum að áhorfendum fyrir leikinn, á meðan á honum stóð og í leikslok. Hluti þeirra mynda birtist hér fyrir neðan.


Næsti leikur Íslands á EM verður á móti Króatíu klukkan 14.30 á morgun, mánudag.


Um leið er minnt á fyrri syrpur Hafliða frá EM2022: Ferðasaganæfing í keppnishöllinniupphitun stuðningsmannaÍsland – Portúgal 28:24StórkostlegirÍsland – Holland 29:28Stuðningurinn, Létt á æfinguÍsland – Ungverjaland 31:30Stemningin í stúkunniÍsland – Danmörk, 24:28. Fjölmennir og hressirÍsland – Frakkland, 29:21. Minningar gleði.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -