Íslenska landsliðið vann stórsigur á Svartfellingum í lokaumferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í MVM Dome í Búdapest í kvöld, 34:24, eftir að hafa verið níu mörk yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:8.
Íslensku piltarnir réðu lögum og lofum í leiknum frá upphafi til enda.
Sigurinn færir íslenska landsliðinu að minnsta kosti þriðja sætið í riðlinum og réttinn til að leika um fimmta sætið. Hvort þetta nægir til þess að Ísland leikur í undanúrslitum EM í þriðja sinn í sögunni kemur í ljós síðar í kvöld.
Mörg ný andlit sáust í leiknum í kvöld auk þess sem þrír sneru til baka á völlinn eftir að hafa verið fjarri um skeið vegna kórónuveirunnar.
Hafliði Breiðfjörð var í MVM Dome og tók margar myndir. Hluti þeirra er hér fyrir neðan.
Um leið er minnt á fyrri syrpur Hafliða frá EM2022: Ferðasagan, æfing í keppnishöllinni, upphitun stuðningsmanna, Ísland – Portúgal 28:24, Stórkostlegir, Ísland – Holland 29:28, Stuðningurinn, Létt á æfingu. Ísland – Ungverjaland 31:30, Stemningin í stúkunni, Ísland – Danmörk, 24:28. Fjölmennir og hressir. Ísland – Frakkland, 29:21. Minningar gleði. Fengum orku. Yfirvegun. Ísland – Króatía. Áhorfendur létu.