- Auglýsing -
Janus Daði Smárason og Ólafur Andrés Guðmundsson eru lausir úr sóttkví og geta leikið með íslenska landsliðinu í handknattleik í dag gegn Noregi í leiknum um 5. sætið á Evrópumeistaramótinu. Þetta kom fram í tilkynningu frá HSÍ sem barst fyrir stundu.
Öll PCR sýni sem tekin voru af leikmönnum, þjálfurum og starfsmönnum landsliðsins í gærkvöld reyndust neikvæð.
Ellefu leikmenn og einn starfsmaður landsliðsins hafa þá greinst síðustu daga. Af þeim eru sex leikmenn enn í einangrun auk starfsmannsins.
Viðureign Íslands og Noregs um 5. sætið á EM hefst klukkan 14.30. Sigurliðið tryggir sér farseðilinn á heimsmeistaramótið sem fram fer eftir ár.
- Auglýsing -