- Auglýsing -
Hinn sigursæli handknattleiksþjálfari Stefán Arnarson hefur framlengt samning sinn um þjálfun kvennaliðs Fram út keppnistímabilið á næsta ári, 2023. Átta ár eru liðin síðan Stefán tók við þjálfun Framliðsins og hefur það verið afar sigursælt á þeim árum.
Fram er um þessar mundir í efsta sæti Olísdeildar kvenna, fimm stigum á undan Val.
„Við í Fram erum gríðarlega ánægð með að tryggja okkur krafta hans áfram enda einn sigursælasti þjálfari handboltans á Íslandi. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í Fram er við flytjum í nýtt hús í vor. Stefán mun stýra kvennaliðinu á okkar fyrsta tímabili á nýjum heimavelli,“ segir m.a. í tilkynningu frá handknattleiksdeild sem barst fyrir stundu.
Stöðuna og næstu leiki í Olísdeild kvenna má sjá hér.
- Auglýsing -