- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Birna Berg heldur ótrauð áfram í Eyjum næstu ár

Harpa Valey Gylfadóttir og Birna Berg Haraldsdóttir leikmenn ÍBV hressar í bragði. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Landsliðskonan sterka, Birna Berg Haraldsdóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Þar með hafa fjórir öflugir leikmenn skrifað undir framlengingu á samningum sínum við ÍBV á síðustu dögum. Auk Birnu Berg eru það Sunna Jónsdóttir, Marta Wawrzynkowska og Karolina Anna Olszowa.


Birna Berg hefur verið í herbúðum ÍBV frá haustinu 2020, þegar hún kom frá Neckarsulmer í Þýskalandi. Hún hafði þá leikið í atvinnumennsku um nokkurra ára skeið í Danmörku, Svíþjóð og Noregi auk Þýskalands.


Birna varð fyrir því óláni að slita krossband í hné í upphafi yfirstandandi tímabils sem varð til þess að hún hefur ekki leikið með ÍBV á þessu tímabili. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ÍBV hefur Birna Berg bitið í skjaldarrendur og lagt afar hart að sér við endurhæfingu í vetur, staðráðin í að koma sterkari en nokkru sinni fyrr til leiks á næsta keppnistímabili.

Birna Berg á að baki 63 A-landsleiki.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -