Andrea Jacobsen reynir að finna skotfæri hjá Hildigunni Einarsdóttur í vörninni. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna hélt áfram undirbúningi sínum fyrir leikinn stóra gegn Tyrkjum í undankeppni Evrópumótsins.
Eftir því sem fram kemur á vef HSÍ fengu leikmenn fengu að sofa út í morgun til að ná endanlega úr sér ferðaþreytunni. Fyrri hluta dags var og frjáls tími sem leikmenn nýttu í göngutúr í nágrenni hótelsins í Kastamonu ásamt hvíld.
Eftir hádegi fundaði Hlynur Morthens markmannsþjálfari liðsins með markmönnum liðsins og á sama tíma funduðu þeir Arnar Pétursson og Ágúst Jóhannsson með öðrum leikmönnum liðsins. Stelpurnar æfðu svo aftur í keppnishöllinni seinni hluta dags og var mikill kraftur í 90 mínútna æfingu. Hér fyrir neðan er nokkrar myndir frá síðari æfingunni sem HSÍ sendi frá sér.
Ísland mætir Tyrklandi á Kastamonu á morgun og hefst leikurinn kl. 16. Hægt verður að fylgjast með leiknum í textalýsingu á handbolta.is.
Andrea Jacobsen, Sandra Erlingsdóttir og Lovís Thompson. Mynd/HSÍArnar Pétursson landsliðsþjálfari fer yfir málin. Mynd/HSÍHelena Rut Örvarsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Lovísa Thompson auk Þóreyjar Rósu Stefánsdóttur, fjær. Mynd/HSÍElísa Elíasdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Hafdís Renötudóttir, Lovísa Thompson, Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Harpa Valey Gylfadóttir. Mynd/HSÍElín Jóna Þorsteinsdóttir og Thea Imani Sturludóttir. Mynd/HSÍElísa Elíasdóttir og Hafdís Renötudóttir, markvörður. Mynd/HSÍUnnur Ómarsdóttir sækir að Helenu Rut Örvarsdóttur. Mynd/HSÍAndrea Jacobsen og Helena Rut Örvarsdóttir í aksjón. Mynd/HSÍHildigunnur Einarsdóttir í vörninni, Harpa Valey Gylfadóttir virðist hafa komið boltanum framhjá Hildigunni. Sandra Erlingsdóttir fylgist með. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari horfir haukfráum augum á. Mynd/HSÍHafdís Renötudóttir, markvörður. Mynd/HSÍMynd/HSÍHelena Rut Örvarsdóttir. Mynd/HSÍUnnur Ómarsdóttir og Andrea Jacobsen. Mynd/HSÍHildigunnur Einarsdóttir og Elísa Elíasdóttir, línukonur. Mynd/HSÍ