- Auglýsing -
Stórleikur Bjarna Ófeigs Valdimarssonar fyrir IFK SKövde dugði liðinu ekki til sigurs á heimavelli í kvöld þegar það mætti Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Gestirnir unnu með þriggja marka mun, 24:21.
Bjarni Ófeigur var allt í öllu hjá IFK Skövde. Hann skoraði sjö mörk úr tíu skotum og fór hamförum í varnarleiknum, eftir því sem næst verður komist. Var hann besti leikmaður liðsins.
Skövde er í fjórða sæti úrvalsdeildar með 30 stig eftir 21 leiki eins og Ystads IF. Kristianstad er á hinn bóginn í öðru sæti með 35 stig eins og meistarar Sävehof en hefur leikið einum leik meira.
Daníel Freyr Andrésson markvörður og samherjar í Guif frá Eskilstuna fengu magalendingu í heimsókn sinni til Alingsås. Heimamenn unnu með 14 marka mun, 42:28. Daníel Freyr stóð hluta leikins í marki Guif og varði 10 skot, 26%.
Guif er áfram í áttunda sæti deildarinnar en það er síðasta sæti sem veitir keppnisrétt í úrslitakeppninni í vor. Lugi frá Lundi er í níunda sæti þremur stigum á eftir Guif en á tvo leiki til góða.
- Auglýsing -