- Auglýsing -
Félagarnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru klæddir og komnir á ról í Búkarest í Rúmeníu þar sem þeirra bíður það verkefni síðar í dag að dæma viðureign Dinamo Búkarest og franska stórliðsins PSG í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Leikurinn hefst klukkan 17.45.
Þetta er fjórði leikur þeirra félaga í Meistardeildinni á þessu keppnistímabili en þeir voru síðast í Flensborg í Þýsklandi fyrir hálfum mánuði. Þóttist þeim takast vel við að halda uppi röð og reglu í viðureign Flensburg og Vive Kielce.
PSG er í þriðja sæti B-riðils á eftir Vive Kielce og Barcelona. Leikmenn Dinamo reka lestina í riðlinum en þeir eru nýgræðingar í keppninni og leika undir stjórn hins sigursæla og fyrrverandi þjálfara Barcelona Xavi Pascual.
Í kvöld eigast við í sama riðli Veszprém og Vive Kielce í Ungverjandi.
- Auglýsing -