Handknattleiksmaðurinn Haukur Þrastarson og liðsmaður pólska meistaraliðsins Vive Kielce segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að það það hafi verið erfið en rétt ákvörðun að verða eftir heima við æfingar í stað þess að láta á það reyna hvort hann gæti leikið með íslenska landsliðinu á Evrópumeistaramótinu í janúar. Haukur dró sig út úr liðinu áður en undirbúningur fyrir mótið fór á fulla ferð.
Pásan í janúar hjálpaði mikið
„Ég get alveg viðurkennt að fyrir áramót var staðan alls ekki góð. Ég var það slæmur að ég gat ekki æft almennilega fyrri hluta tímabilsins. Mér tókst ekki að sýna mitt rétta andlit enda æfði ég lítið þegar ég tók þátt í leikjum. Ég fann að staðan var ekki góð en það er erfitt að sætta sig við það þegar maður hefur verið lengi frá. Löngunin er mikil að ná sér aftur á strik. Ég tel því að pásan í janúar hafi hjálpað mér mjög mikið. Það var mjög erfið ákvörðun að vera heima í stað þess að fara á EM en núna er ég sannfærður um að það hafi verið rétt ákvörðun,“ segir Haukur í samtali við Bolvíkinginn Kristján Jónsson, blaðamann Morgunblaðsins.
Haukur sleit krossband í hné í leik með Vive Kielce gegn Elverum í október 2020 og mætti ekki leiks aftur fyrr en í upphafi síðasta keppnistímabils. Hann segist enn eiga eitthvað í land að ná fyrri styrk en vinni ótrauður að settu mark að ná fullri heilsu.
Veit alltaf af þeim
„Ég er ekki laus við hnémeiðslin vegna þess að maður veit alltaf af þeim. Það er ýmislegt sem fylgir þessu. Maður er í rauninni með hugann við það allan daginn að fara vel með sig til að ná að æfa vel og spila,“ segir Haukur í fyrrgreindu samtali við Morgunblaðið.
Finnur sig betur með hverri viku
„Ég nýtti tímann mjög vel heima á Selfossi í janúar í meðhöndlun og til að byggja mig upp í styrk. Mér tókst að nýta tímann í desember og janúar mjög vel. Fyrir vikið hef ég verið mun betri í hnénu eftir að ég kom aftur út til Póllands og mér hefur gengið betur á vellinum. Ég finn mig betur með hverri vikunni sem líður,“ segir Haukur Þrastarson við Morgunblaðið.
Haukur er væntanlegur er til landsins eftir næstu helgi og tekur þátt í æfingabúðum íslenska landsliðsins sem standa yfir á höfuðborgarsvæðinu frá 14. til. 20. mars