- Auglýsing -
Ekkert er slegið af við keppni í Grill66-deildum kvenna þessa vikuna enda þarf að vinna upp nokkra frestaða leiki frá síðustu vikum til að halda áætlun. Liðsmenn Gróttu sækja ungmennalið Vals heim í kvöld í Origohöllina. Viðbúið er að ekkert verði gefið eftir þótt hvorugt liðið sé í toppbaráttu um þessar mundir.
Áfram verður leikið í Grill66-deild kvenna annað kvöld auk þess sem þráðurinn verður tekinn upp á nýjan leik í Olísdeild kvenna eftir nokkurt hlé vegna landsleikja og endaspretts í Coca Cola-bikarnum.
Leikur kvöldsins
Grill66-deild kvenna:
Origohöllin: Valur U – Grótta, kl. 20.15.
Stöðuna og næstu leiki í Grill66-deild kvenna er að finna hér.
- Auglýsing -