Daníel Freyr Andrésson, markvörður, og samherjar hans í Guif frá Eskilstuna, fóru illa að ráði sínu í kvöld þegar þeir töpuðu fyrir Önnereds á útivelli, 32:27, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Eftir jafnan fyrri hálfleik, fataðist Daníel Frey og samherjum flugið í síðari hálfleik sem þeir töpuðu með fimm marka mun.
Guif vann topplið IFK Kristianstad nokkuð óvænt í síðustu umferð.
Daníel Frey varði vel þann tíma sem hann stóð í marki Guif, alls níu skot, og var með 45% hlutfallsmarkvörslu.
Önnreds og Guif eru í níunda og tíunda sæti úrvalsdeildarinnar með átta stig hvort lið að loknum 10 leikjum.
Leik Alingsås, sem Aron Dagur Pálsson leikur með og Aranäs var frestað eftir að kórónuveirusmit greindist í fimm leikmönnum Alingsås í dag eins og handbolti.is greindi frá í dag.