- Auglýsing -
Áhugasamir um vöxt og viðgang handknattleiks á Íslandi geta nú látið látið í sér heyra og boðið sig fram til stjórnarstarfa því framundan er 65. ársþing Handknattleikssambands Íslands.
Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu HSÍ fer þingið fram laugardaginn 30. apríl í Origo-höllinni á Hlíðarenda. Þingsetning verður klukkan 10.
Formaður var kjörinn til tveggja ára á síðasta þingi.
Nánari upplýsingar um þingið, þar á meðal um framboðsfrest til stjórnar er að finna hér.
- Auglýsing -