- Auglýsing -
Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten Schaffhausen komust í gærkvöld í undanúrslit í bikarkeppninni í Sviss þegar þeir lögðu St Gallen, 28:25, á útivelli í undanúrslitum keppninnar að viðstöddum 30 áhorfendum. Ekki máttu fleiri vera í keppnishöllinni að fylgjast með vegna kórónuveirunnar.
Kadetten var sjö mörkum yfir í hálfleik, 17:10. Leikmenn St Gallen sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og tókst að minnka muninn í tvö mörk, 22:20. Nær komust þeir ekki.
Kadetten mætir HC Krisens í undanúrslitum bikarkeppninnar en þetta eru tvö efstu lið svissnesku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir.
- Auglýsing -