- Auglýsing -
- Auglýsing -

Heiðmar heldur sínu striki

Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari þýska 1. deildarliðsins Hannover-Burgdorf. Mynd/Hannover-Burgdorf
- Auglýsing -

Heiðmar Felixson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning um að vera aðstoðarþjálfari 1. deildarliðsins Hannover-Burgdorf og vera þar með hægri hönd Christian Prokop þjálfara. Heiðmar tók við starfinu í lok september en var þá aðeins ráðinn út yfirstandandi keppnistímabil.


Jafnframt heldur Heiðmar áfram þjálfun yngri leikmanna hjá félaginu eins og hann hefur gert.


Hannover-Burgdorf sagði frá þessu fyrir stundu. Hannover-Burgdorf er í 14. sæti af 18 liðum þýsku 1. deildarinnar með 16 stig eftir 23 leiki og er sex stigum frá N-Lübbecke sem situr á botninum.


Heiðmar lék með Hannover-Burgdorf frá 2004 til 2009 og síðar með Lübbecke, TS Großburgwedel og loks TSV Burgdorf í neðri deildum auk þess að vera þjálfari um nokkurra ára skeið. Hann lék 55 landsleiki fyrir Ísland og tók m.a. þátt í heimsmeistaramótinu árið 2003 sem fram fór í Portúgal.


Áður en Heiðmar gekk til liðs við Bidasoa Irun á Spáni 2002 hafði hann leikið með Þór Akureyri, KA, Stjörnunni og HC Wuppertal. Einnig gerði Heiðmar garðinn frægan hér á landi sem afbragðs knattspyrnumaður og lék knattspyrnu um skeið með neðri deildar liðum í Þýskalandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -