Elvar Örn Jónsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska 1. deildarliðsins MT Melsungen verður frá keppni næstu fimm mánuði vegna alvarlegra axlarmeiðsla sem hann varð fyrir í landsleik Íslands og Austurríki í umspili um HM-sæti í Bregenz 13. apríl.
Melsungen segir frá þessu á heimasíðu sínni í dag og lætur þess einnig getið að framundan sé aðgerð hjá Elvari Erni til þess að fá bót meina sinna. Hann leikur ekki fleiri leiki á þessu keppnistímabili og missir einnig af upphafi næsta keppnistímabils.
Elvar Örn féll á vinstri öxlina þegar hann var í baráttu í vörninni í fyrri hálfeik í leiknum í Bregenz. Skaddaðist hann í kringum axlarliðinn.
Elvar Örn gekk til liðs við Melsungen fyrir tæpu ár og hefur fest sig í sessi sem einn traustasti og mikilvægasti leikmaður liðsins á þessu tímabili auk þess að vera í stóru hlutverki í íslenska landsliðinu á síðustu árum. Elvar Örn er einn fjögurra öflugra leikmanna Melsungen sem verður fjarverandi á endaspretti deildarkeppninnar í Þýskalandi.
Melsungen er í áttunda sæti 1. deildar um þessar mundir með 29 stig þegar átta umferðir eru eftir.
- Auglýsing -