- Auglýsing -
- Þýski landsliðsmaðurinn Matthias Musche og liðsmaður SC Magdeburg verður væntanlega ekki meira með liðinu á þessu ári eftir að hafa meiðst á hné í viðureign SC Magdeburg og Rhein-Neckar Löwen í fyrrakvöld.
- Nærbø komst í gærkvöld í úrslit norsku bikarkeppninnar í handknattleik karla með sigri á Arendal, 30:25, á heimavelli. Þetta er í fyrsta sinn sem Nærbø, sem er smábær með um 7.000 íbúa, kemst með lið í úrslit í norsku bikarkeppninni. Lið félagsins er að grunni til byggt upp á heimamönnum sem sumir hafa leikið saman síðan á barnsaldri.
- Elverum og Drammen með þá Óskar Ólafsson og Viktor Petersen Nordberg innan borðs, áttu að mætast í hinni viðureign undanúrslitanna í gærkvöld. Leiknum var frestað vegna þess að nokkrir leikmenn liðanna tóku þátt í leikjum með landsliðum sínum í síðustu viku og á sunnudag. Þeir þurfa að vera í sóttkví í framhaldi af komu til Noregs á nýjan leik. Nýr leikdagur hefur ekki verið ákveðinn.
- Ein fremsta handknattleikskona heims, Hollendingurinn Estavana Polman vonast til þess að ná að leika með Esbjerg í úrslitakeppninn um danska meistaratitilinn í vor. Polman sleit krossband í byrjun ágúst. Hún sagði í samtali við TV2 í gærkvöld að endurhæfing gangi vel og ástæða væri til bjartsýni um að hún geti tekið þátt í úrslitakeppninni. Esbjerg er ríkjandi meistari í Danmörku.
- Annars tapaði Esbjerg í gærkvöld á heimavelli fyrir Viborg í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar, 30:28. Leikið var í Esbjerg. Viborg komst þar með í efsta sæti deildarinnar. Liðið hefur 22 stig eftir 12 leiki. Esbjerg er með 21 stig og Odense 20 en á leik til góða á tvö efstu liðin. Odense átti að leika við Vendsyssel í fyrrakvöld en leiknum var frestað vegna minkafársins sem ríkir á norðurhluta Jótlands.
- Moritz Preuss línumaður SC Magdeburg er enn einn leikmaðurinn úr þýska landsliðshópnum sem greinst hefur með kórónuveiruna á síðustu dögum. Félag hans greindi frá þessu í gær.
- Auglýsing -