- Auglýsing -
Leikið verður á tvennum vígstöðvum í kvöld á Íslandsmótinu í handknattleik. Í Set-höllinni á Selfossi halda lið Selfoss og Vals áfram að keppast um sæti í undanúrslitum Olísdeildar karla. Einn leikur er að baki. Hann unnu Valsmenn örugglega með 11 marka mun, 36:25. Í kvöld verður komið að leikmönnum Selfoss að svara fyrir sig. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Í Austurberg mætast ÍR og Fjölnir í þriðja sinn í umspili um sæti í Olísdeild karla á næsta keppnistímabili. Liðin hafa unnið sinn leikinn hvort en þrjá vinninga þarf til þess að standa uppi sem sigurvegari í umspilinu og öðlast þar með sæti í Olísdeildinni á næsta keppnistímabili.
ÍR vann fyrsta leikinn í Austurbergi á laugardaginn, 36:24. Fjölnir svaraði fyrir með því að vinna, 27:23, í Dalhúsum á mánudagskvöld.
Olísdeild karla, undanúrslit, annar leikur:
Sethöllin: Selfoss – Valur (0:1), kl. 19.30 – sýndur á Stöð2sport.
Leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla er að finna hér.
Umspil Olísdeildar karla, þriðji úrslitaleikur:
Austurberg: ÍR – Fjölnir (1:1), kl. 19.30.
Leikjadagskrá umspils Olísdeildar karla er að finna hér.
- Auglýsing -